Clickerþjálfun, hvað er nú það?
Margir hafa eflaust heyrt um clickerþjálfun og flestir hafa nú heyrt um að þetta sé mjög skemmtileg leið til að kenna hundinum sínum. Margir nota clickerþjálfun eingöngu til að kenna hundinum einhverjar kúnstir eins og að gefa "high five" eða "veifa" og svo framvegis.
En vissuð þið að clickerþjálfun er hægt að nota í alla þjálfun? Alveg sama hvað þú vilt kenna hundinum þínum þá geturðu notað clickerþjálfun. Sem dæmi þá hefur clickerþjálfun verið notuð til að kenna hundafimi, spor, veiði, hlýðni, blindrahundum, smölun, hundadans (freestyle), sprengjuleit, fíkniefnaleit, krabbameinsleit og margt margt fleira.
Aðferðin byggist á að merkja rétta hegðun með merki (clicker) og styrkja þær. Á námskeiðunum okkar förum við yfir allt vinnuferlið og kennum ykkur hvernig allt fer fram. Við notumst eingöngu við jákvæðar aðferðir og beitum aldrei hörku. Að beita hörku á hund gefur ekki sama árangur og að nota jákvæðar og uppbyggjandi aðferðir. Það er líka mikið skemmtilegra að þjálfa þegar báðir aðilar hafa gaman, því þetta á alltaf að vera samvinna milli eiganda og hunds.