Næstu námskeið 12/20/2010
Þá er undirbúningur hafinn fyrir árið 2011. Við ætlum okkur að vera með námskeið í febrúar eða mars. Við erum búin að prufukeyra nýja húsnæðið hjá hundaskóla Míó Minn og líst mjög vel á. Við erum komin í samstarf við Míó minn og öll okkar námskeið verða haldin í þeirra húsnæði í framtíðinni. Við komum með dagskrá fljótlega og aldrei að vita nema það bætist við eins og eitt eða jafnvel 2 námskeið inn á listann okkar sem verða sérhæfð. Annað þeirra verður miðað sérstaklega fyrir hunda sem eiga í vandræðum með að vera í kringum aðra hunda. Nánari lýsing á því kemur seinna. Fylgist með! Kv. Rúnar T KPA CTP Add Comment | NámskeiðHér setjum við út tilkynningar um námskeið sem eru að fara að byrja. DagatalArchivesOctober 2011 CategoriesAll |

RSS Feed