Grunnnámskeið í Clicker 06/20/2010
Það er að byrja námskeið hjá okkur. Það byrjar 2 Júlí og klárast 25. Júlí. Fyrsti tíminn verður 2. Júlí og er hann bóklegur. Ætlum að hittast í Voffaborg klukkan 19:00 og er reiknað með að klára um 22:00. Verklegu tímarnir verða svo laugardaginn 3. Júlí og svo á sunnudagana 4, 11, 18 og 25. Júlí. Verklegu tímarnir byrja klukkan 15:00 og eru búnir klukkan 17:00. Tímarnir verða ýmist haldnir inni eða úti, fer eftir veðri. Námskeiðið kostar 15000 krónur og er skráning á námskeið ekki tekin gild fyrr en búið er að greiða gjaldið (eða semja um greiðsludag). Færri hafa komist að en vilja svo það er best að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram hér CommentsArna Rún Grönvold 06/23/2010 12:30:31 am Sæl, er að reyna að skrá mig á clicker grunnnámskeið hjá ykkur, en þegar ég er búin að fylla inn presónuupplýsingarnar og ýti á submit, þá kemur bara upp tóm síða, allt hvítt. Er ég þá samt skráð? 06/23/2010 12:34:21 am Ég hef ekki fengið skráningu frá þér en er að fá skráningar frá öðrum. Sendi þér email... Leave a Reply | NámskeiðHér setjum við út tilkynningar um námskeið sem eru að fara að byrja. DagatalArchivesOctober 2011 CategoriesAll |

RSS Feed