Grunnnámskeið í Clickerþjálfun
Grunnnámskeið er fyrir þá sem eru nýbyrjaðir eða vilja byrja á clickerþjálfun fyrir hundinn sinn. Við förum í undirstöðuatriði clickerþjálfunar og hvernig skal byrja. Gerum einfaldar æfingar með hundana og einnig eru verklegar æfingar fyrir eigendur til að byggja upp góða tímasetningu og venjast því að vera með clicker við hendina í þjálfun. Hér er ekki eingöngu lögð áhersla á hundinn heldur viljum við að fólk læri hvernig hundar hugsa og læra nýjar hegðanir. Við teljum það nauðsynlegt að eigendur geti farið heim eftir námskeið og haldið áfram að kenna hundinum nýjar hegðanir, geti brugðist við og þjálfað ef ske kynni að hundurinn bjóði skyndilega upp á óæskilega hegðun sem eigandi þarf að bregðast við. Nemendur hafa líka alltaf þann möguleika að hafa samband við okkur og biðja um ráð. Þó að námskeiðið sé búið verðum við enn til staðar til að svara spurningum.
Í bóklega tímanum er farið yfir helstu atriði clickerþjálfunar. Afhverju notum við clicker, hverjir eru kostir og gallar. Afhverju refsum við ekki, hvaða afleiðingar hafa refsingar. Verklegar æfingar án hunds og margt fleira.
Í verklegu tímunum vinnum við með hundana. Farið verður yfir skipulagt þjálfunarplan sem allir þurfa að fylgja. Skiptir engu máli hvort hundurinn kann æfinguna eða ekki fyrir námskeið. Ef hann kann það þá fer hann áfram í næstu æfingu. Við höfum ekki lent í hundi sem kann allar æfingarnar sem við biðjum um.
Hundurinn þarf að vera 3 mánaða eða eldri - Aldur skiptir ekki máli, þarf bara að hafa náð 3 mánaða aldri og vera fullbólusettur og ormahreinsaður.
Það er enginn forveri á þetta námskeið - þarf ekki að hafa farið á nein önnur hlýðninámskeið.
Til að ljúka námskeiði og fá viðurkenningu þarf að:
mæta í bóklegan tíma
mæta í 6 af 7 verklegum tímum
koma með góða skapið í tímana :)
Námskeiðið er alls 8 skipti.

Staðsetning
Námskeiðið er haldið í húsnæði hundaskóla Mio Minn
Nýbýlavegi 30, Kópavogi
Nýbýlavegi 30, Kópavogi