Kristín Þorvaldsdóttir
Fyrsti hundur Kristínar var blendingur með langa og erfiða sögu að baki. Gegnum hann fékk Kristín mikinn áhuga á atferli og þjálfun hunda með jákvæðum aðferðum og toppurinn af þeim ísjaka er að sjálfsögðu klikkerþjálfun. Í dag á hún 3 hunda, hefur farið á mörg námskeið, bæði klikkernámskeið og hefbundin, bæði í Svíþjóð og á Íslandi. Hún er einnig stofnandi og eigandi ferskfóðurfyrirtækisins Hundahreysti. Hún á tvö börn, var formaður mjóhundadeildar HRFÍ í þrjú ár og er nú einn aðalumsjónarmaður beituhlaups á vegum deildarinnar.
