• Heim
  • Námskeið
  • Um okkur
  • Skráning

Monika Karlsdóttir

Picture
Monika hefur verið með hunda á heimilinu síðan í æsku en byrjaði að þjálfa hunda í 1987 þegar hún fékk sinn fyrsta Schaeferhund og stuttu seinna íslenskan fjárhund. Fyrstu hundarnir hennar lærðu hlýðni hjá Emilíu og Þórhildi í Hundaskólanum á Bala og náðu frábærum einkunum í hlýðni 1, 2 og 3. Eftir það bauðst Moniku tækifæri til að stunda nám í hundaþjálfun og langlínu/fjarlægðarþjálfun hjá Smyg hundaþjálfurunum þeim Åsa Ahlbom og Agnetu Geneborg og aðstoðaði með hvolpanámskeið hjá HRFÍ um tíma. Hún hefur komið víða við í námi og tekið þátt á mörgum ráðstefnum, námskeiðum og fyrirlestrum hjá t.d. Roger Abrantes, Lars Fält, Anders Hallgren, Turid Rugaas, Roger Mugford og fleiri þ.m.t. í hundafimi. Monika hefur alltaf verið með áhuga á hundasportum alls konar og var fengin til að sjá um undirbúning og stofnun Íþróttadeildar HRFÍ og fékk hún með sér nokkrar vinkonur í þetta. Var henni boðið að vera saman með æfingahóp í hlýðni- og hundafimi kynningum og sýningum á vegum Bala og Íþróttadeildarinnar og hafði mjög gaman af.

Þar sem lítið var um að vera hér heima á Íslandi ákvað hún ásamt þáverandi eiginmanni að flytja til Noregs til að stunda þetta sport og keppa í hlýðni með tíkurnar sínar 3 en þá kviknaði áhugann á að læra meira. Hún æfði og fór á ýmis námskeið hjá klúbbum eins og Stovner Hundeklubb og Oslo og Omegn Hundeklubb. Stovner Hundeklubb bauð henni að vera lærlingur til að hún gæti stundað nám í hundaþjálfun og hlýðnidómara hjá Norsk Kennel Klubb og hefur hún verið með réttindi frá þeim síðan 2001 ásamt hlýðnidómararéttindi í dag hjá Hundaræktarfélagi Íslands.

Hún byrjaði semsagt að þjálfa með hefðbundnum aðferðum og notaðist við allar mögulegar aðferðir og hjálpartæki þar til hún kynntist klikkertrening eins og það heitir í Norðurlöndunum 1998 og eftir það var ekki aftur snúið. Eins og flestir var hún "crossover" þjálfari um tíma en hún hefur nú verið að clickerþjálfa eingöngu í um 10 ár og er með afburðargóða þekkingu á Clickerþjálfun og er ein sú fremsta á því sviði hér á Íslandi. Hún stofnaði skólann í byrjun 2002 aðallega til að kenna eigin hvolpakaupendum þar sem gotin hennar hafa verið clickerþjálfuð frá gotkassanum og hefur haldið námskeið í Clickerþjálfun í gegnum árin hér á Íslandi allt frá hvolpanámskeið, veiðihundanámskeið (með dúfuþjálfun), sækinámskeið, hlýðninámskeið og hefur einnig þjálfað spor og hundafimi með eigin hunda. Hefur ræktað Íslenska Fjárhunda í mörg ár og einnig Snögghærða Vorsteh. Skólinn datt niður um tíma en er að fara af stað aftur eftir smá pásu.