Skráning á biðlista 10/29/2011
Vorum að setja inn skráningar síðu fyrir þá sem vilja komast á biðlista. Erum með þónokkra á lista núþegar en alltaf hægt að bæta við. Látum svo vita um leið og næsta námskeið er ákveðið, erum enn að leita að húsnæði í borginni Kv. Rúnar og Monika Add Comment Við erum á lífi 10/20/2011
Sæl Vildum bara láta ykkur vita að við erum hér ennþá. Ýmislegt búið að vera í bígerð hjá okkur en það sem við erum mest að vinna í þessa dagana er að finna hentugt húsnæði til að halda námskeiðin okkar í. Erum búin að skoða nokkur húsnæði en það hefur gengið brösulega að finna rétta húsnæðið. En við gefumst ekki upp og munum koma okkur upp góðri aðstöðu þar sem verða haldin námskeið reglulega. Í gegnum árin höfum við verið að halda námskeið af og til en við stefnum á að breyta því. Við látum vita hér um leið og eitthvað fer að skýrast með næstu námskeið hjá okkur, það eru margir að bíða. Facebook síðan okkar bilaði og við neyddumst til að stofna nýja síðu og hvet alla að kíkja inn á hana og "læka". Hún er hér www.facebook.com/tofralausnir 2 Námskeið sem byrja í febrúar 01/29/2011
Þá er komið að því. Grunnnámskeið í clickerþjálfun er að byrja. Bóklegi tíminn verður 12. Febrúar og verklegu tímarnir eru svo á sunnudögum eftir það. Sjá nánar á dagatalinu okkar. Grunnnámskeiðið kostar 25.000 krónur. Hægt er að semja um greiðslu ef fólk vill (td. skipta henni í tvennt). Ekki mörg sæti laus. Framhaldsnámskeið í clickerþjálfun er líka að fara að byrja. Bóklegi tíminn verður 15. Febrúar og verklegu tímarnir eru svo á sunnudögum eftir það. Sjá nánar á dagatalinu okkar. Framhaldsnámskeið kostar 20.000 krónur og er eingöngu fyrir þá sem hafa klárað og fengið viðurkenningu á grunnnámskeiði hjá okkur. Allar nánari upplýsingar fást á email runar@tofradogs.com Kv. Rúnar T KPA CTP Næstu námskeið 12/20/2010
Þá er undirbúningur hafinn fyrir árið 2011. Við ætlum okkur að vera með námskeið í febrúar eða mars. Við erum búin að prufukeyra nýja húsnæðið hjá hundaskóla Míó Minn og líst mjög vel á. Við erum komin í samstarf við Míó minn og öll okkar námskeið verða haldin í þeirra húsnæði í framtíðinni. Við komum með dagskrá fljótlega og aldrei að vita nema það bætist við eins og eitt eða jafnvel 2 námskeið inn á listann okkar sem verða sérhæfð. Annað þeirra verður miðað sérstaklega fyrir hunda sem eiga í vandræðum með að vera í kringum aðra hunda. Nánari lýsing á því kemur seinna. Fylgist með! Kv. Rúnar T KPA CTP Nóvember námskeið. Grunnnámskeið í Clicker 10/02/2010
Þá eru komnar dagsetningar á Nóvember námskeiðið. Grunnámskeið í Clickerþjálfun. Alls 8 skipti. Við höfum ákveðið að lengja námskeiðið um 2 verklega tíma. 6. Nóvember. Laugardagur. Bóklegur tími, byrjar klukkan 12:00 og búinn 16:00 Verklegir tímar eru á sunnudögum. Skiptum niður í 2 hópa. Fyrri hópur klukkan 16:00 - 16:50 Seinni hópur klukkan 17:00 - 17:50 7. Nóvember. 14. Nóvember 21. Nóvember. 28. Nóvember. 5. Desember. 12. Desember. 19. Desember. Nánari upplýsingar um námskeiðið Allar aðrar spurningar sendist á email: Rúnar Skráning fer fram hér á síðunni okkar. SKRÁNING Námskeið 09/23/2010
Höfum hugsað okkur að setja af stað grunnnámskeið og framhaldsnámskeið í Nóvember. Fylgist með! Kv. Rúnar KPA CTP Júlí námskeið er fullt 07/01/2010
Það er fullt á Grunnnámskeiðið í Júlí. Næsta námskeið verður auglýst hér. Vegna anna verður næsta námskeið örugglega ekki fyrr en í haust Kv. Rúnar KPA CTP Grunnnámskeið í Clicker 06/20/2010
Það er að byrja námskeið hjá okkur. Það byrjar 2 Júlí og klárast 25. Júlí. Fyrsti tíminn verður 2. Júlí og er hann bóklegur. Ætlum að hittast í Voffaborg klukkan 19:00 og er reiknað með að klára um 22:00. Verklegu tímarnir verða svo laugardaginn 3. Júlí og svo á sunnudagana 4, 11, 18 og 25. Júlí. Verklegu tímarnir byrja klukkan 15:00 og eru búnir klukkan 17:00. Tímarnir verða ýmist haldnir inni eða úti, fer eftir veðri. Námskeiðið kostar 15000 krónur og er skráning á námskeið ekki tekin gild fyrr en búið er að greiða gjaldið (eða semja um greiðsludag). Færri hafa komist að en vilja svo það er best að skrá sig sem fyrst. Skráning fer fram hér Námskeiðin 06/20/2010
Hér koma tilkynningar um námskeið sem eru á döfinni | NámskeiðHér setjum við út tilkynningar um námskeið sem eru að fara að byrja. DagatalArchivesOctober 2011 CategoriesAll |

RSS Feed