• Heim
  • Námskeið
  • Um okkur
  • Skráning

Rúnar Tryggvason KPA CTP

Picture
Rúnar er lærður hundaþjálfari frá Karen Pryor Academy í Bandaríkjunum. Lauk námi sumarið 2009 en hafði verið að clickerþjálfa í um 5 ár áður en hann fór í námið. Það eru gerðar miklar kröfur á þá sem stunda nám hjá KPA og til að útskrifast þarf að sýna fram á mjög góða þekkingu á vísindunum á bakvið clickerþjálfun og hundaatferli almennt. Hvernig er best að leysa úr vandamálahegðunum og leiðbeina fólki með það. Útskrifaðist sem Certified Training Partner en aðeins þeir sem geta sýnt fram á yfirburða góða þekkingu í þessum aðferðum fá þann eftirsótta titil og fá að titla sig með nafni akademíunnar.
Einnig er hann fullgildur meðlimur APDT eða Association of Pet Dog Trainers.

Oftast hefur hann verið betur þekktur sem "maðurinn hennar Moniku" seinustu ár því hann er líka að rækta íslenska fjárhunda með Moniku undir ræktunarnafninu Töfra.  Þau eiga 5 hunda í dag en ræktunartíkurnar eru flestar að verða komnar á aldur og verður því rólegt að gera í ræktun næstu ár hjá þeim.  Þau hafa ávallt clickerþjálfað gotin sem þau hafa verið með og reyna eftir fremsta megni að undirbúa hvolpana fyrir heiminn og aðstoða nýja eigendur með Töfra hundinn sinn.

Picture
Association of Pet Dog Trainers - Dog Training Professionals